Fara í efni

Staðan í kjaraviðræðum

Samkomulag um áframhald kjaraviðræðna Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar

Aðilar eru sammála um að framlengja kjaraviðræðum Sambands íslenskra sveitarfélga og Starfsmannafélags Garðabæjar á grundvelli eftirfarandi forsendna:

Aðilar eru sammála um að framlengja kjaraviðræðum til 30. september 2015 og skapa þannig svigrúm til frekari viðræðna.

Náist samkomulag um framlengingu kjarasamninga aðila fyrir lok september 2015 mun sú upphafshækkun sem um semst, eða ígildi hennar, gilda frá og með 1. maí 2015.

Náist ekki samkomulag fyrir 30. september 2015 er SNS ekki bundin af fyrrgreindu tímamarki um gildistöku kjarasamnings.