Fara í efni

Starfsreglur Orlofsnefndar

Starfsreglur Orlofsnefndar

uppfært 15.12.2020

 

Starfsreglur fyrir orlofsnefnd félagsmanna í Starfsmannafélagi Garðabæjar (STAG)

  1. Orlofsnefnd annast úthlutun orlofshúsa og annarra valkosta sem í boði eru á hverjum tíma á vegum orlofsnefndar STAG.

  2. Eftir 5 ár í starfi hjá Garðabæ myndast réttur félagsmanns á að fá orlofshús á Spáni endurgjaldslaust í 2 vikur. Sá réttur vaknar aftur 10 árum eftir að hann er nýttur. Þó skal alltaf greiða staðfestingargjald 25% af leiguverði sem er ekki endurkræft.

  3. Orlofsnefnd annast rekstur og umsjón eigna.  Skal nefndin gera árlega rekstraráætlun í samráði við stjórn STAG.  Allar stærri framkvæmdir, fjárfestingar og skuldbindingar sem ekki teljast eðlilegur rekstur orlofshúsa eru háðar samþykki stjórnar.

  4. Fullgildur umsækjandi um leigu á orlofsvalkostum telst sá sem orðinn er 20 ára og hefur verið í STAG eigi skemur en eitt ár.  Miðað er við 50% starf eða meira.  Orlofsnefnd er heimilt að gera undantekningar varðandi umsækjendur standi hús óleigð.       
  5. Félagsmenn geta fengið úthlutað orlofsvalkostum oftar en einu sinni sama árið, standi það að öðrum kosti óleigt. Punktastaða hvers umsækjanda ræður úthlutun hverju sinni.

  6. Eftirlaunaþegar/öryrkjar í STAG eru fullgildir félagsmenn næstu tvö ár eftir að þeir láta af störfum, enda hafi starfið verið þeirra aðalstarf a.m.k. síðustu 4 ár á undan. Að auki geta þeir sótt um orlofshús í miðri viku á vetrartíma, þeim að kostnaðarlausu.Hafi starfsmaður fengið úthlutað en lætur af störfum áður en útleiga hefst, skal úthlutun standa. Starfsmaður sem lætur af störfum (á ekki við um eftirlaunaþega né öryrkja) á ekki rétt á úthlutun frá starfslokum.                                                                               
  7. Orlofsnefnd setur félagsmönnum reglur um afnot, daglega umgengni og viðskilnað í orlofshúsum.

  8. Orlofsnefnd fer með umboð félagsins í félögum húseigenda sem STAG á aðild að.

  9. Reglur um punktasöfnun, virkur félagsmaður safnar einum punkti á mánuði = 12 punktar á ári.  Eftirlaunaþegar/öryrkjar safna ekki punktum eftir starfslok, en nýta punkta samkvæmt reglum

  10. Orlofshús innanlands í punktum:

Júní           18 punktar
Júlí            24 punktar
Ágúst        18 punktar
Páskar      18 punktar

 Orlofshús á Spáni í punktum:

Tímabilið júní – ágúst 24 punktar.

Tímabilið september – október 18 punktar.

Tímabilið nóvember - maí 1 punktur á sólarhring.

Starfsaldursstyrkur geri 24 punkta.

11.  Ágreiningur sem kann að rísa varðandi túlkun á starfsreglum skal leggja fyrir stjórn STAG sem sker úr um lausn mála.

 

Samþykkt breyting á fundi orlofsnefndar þann 15. desember 2020.