Fara í efni

Laus orlofshús í sumar

Orlofsnefnd hefur nú lokið við úthlutun vegna orlofshúsa okkar innanlands í sumar.

Enn eru nokkrar vikur lausar í sumar í orlofshúsunum okkar hér innanlands.  Tölvupóstur var sendur í dag til félaga okkar í dag með upplýsingum um þær vikur sem lausar eru og einnig með upplýsingum um þær helgar sem enn eru lausar fram á sumarið.  Nú gildir bara fyrstur kemur, fyrstur fær.

Eins eru nokkrar vikur lausar í húsinu í Danmörku, en ekkert er laust á Spáni fyrr en um jólin.

Hafir þú ekki fengið póst frá okkur með þessum upplýsingum, höfum við ekki netfangið þitt og biðjum þig endilega að senda okkur línu á:  stag@stag.is