Fara í efni

Breytingar á A-deild Brúar lífeyrissjóðs

Kæri sjóðfélagi

Þann 1. júní næstkomandi verða breytingar gerðar á réttindaöflun í A deild Brúar lífeyrissjóðs.

Meðfylgjandi er rafbréf með helstu breytingum sem koma þá til framkvæmda.

Við hvetjum þig einnig til að kynna þér breytingarnar á vefsíðunni: http://www.lifbru.is/is/sjodsfelagar/breyting-a-a-deild-fra-1-juni

 

Eftirfarandi breytingar á A deild koma til framkvæmda 1. júní 2017:

  • Réttindaávinnslu A deildar er breytt úr jafnri réttindaávinnslu yfir í aldurstengda réttindaávinnslu.
  • Lífeyrisaldur er samræmdur við almennan vinnumarkað og verður 67 ár.
  • Lífeyristaka getur sem fyrr hafist á milli 60 og 70 ára aldurs.
  • A deild er viðhaldið en þeir sem greiða áfram iðgjald til sjóðsins fara yfir í aldurstengda réttindaávinnslu. Mismunur á réttindum í jafnri og aldurstengdri ávinnslu er mætt með sérstöku framlagi, lífeyrisauka, sem launagreiðendur greiða til sjóðsins.
  • Réttindi þeirra sem byrjaðir eru á lífeyri þann 31. maí 2017 og þeirra sem hafa náð 60 ára aldri á sama tíma verða ekki skert eða aukin þó svo til skerðingar eða réttindaaukningar komi hjá öðrum sjóðfélögum.
  • Réttindi annarra sjóðfélaga verða framvegis bundin tryggingafræðilegri stöðu og geta lækkað eða hækkað eftir afkomu sjóðsins. Þetta á bæði við um áunnin réttindi fyrir 1. júní næstkomandi og framtíðarréttindi sjóðfélaga.

 Nýir sjóðfélagar eftir 1. júní 2017

Sjóðfélagar sem byrja að greiða til sjóðsins eftir 1. júní 2017 ávinna sér réttindi sem eru aldurstengd og bundin afkomu sjóðsins.

 Áhrif á sjóðfélaga sem áttu aðild að A deild fyrir 1. júní

Áunninn réttindi þeirra sjóðfélaga sem eiga aðild að A deild fyrir breytingarnar verða ekki skert við breytinguna vegna framlags launagreiðenda til sjóðsins. Réttindi geta þó framvegis hækkað eða lækkað eftir afkomu sjóðsins.

 Nánari upplýsingar eru á lifbru.is