Fyrsta úthlutun vegna sumar innanlands 2026 var í dag og hafa umsækjendur fengið tilkynningu í tölvupósti. Þeir sem fengu úthlutað þurfa að greiða fyrir umsóknirnar til þess að ljúka bókuninni. Það er gert á mínum síðum STAG. Þegar félagsmaður skráir sig inn á mínar síður tekur tekur á móti honum yfirlit þar sem fram kemur ógreitt og heiti orlofshússins. Þar er valmöguleiki að ýta á "greiða" og með því kemst félagsmaðurinn á greiðslusíðu og getur gengið frá greiðslunni.
Við munum opna fyrir úthlutun nr. 2 í næstu viku.