Stjórn Menntasjóðs STAG hefur yfirfarið reglur sjóðsins og samþykkti stjórn STAG breytingar á þeim 15. september 2026.
Við endurskoðun reglnanna var sérstök áhersla lögð á að auka gagnsæi og fyrirsjáanleika við afgreiðslu umsókna. Umsóknarfrestur er nú 20. hvers mánaðar, en greiðsludagur styrkja verður áfram sá sami og áður.
Menntasjóður veitir félagsfólki styrki meðal annars vegna náms, námskeiða og annarrar fræðslu. Sótt er um rafrænt á Mínum síðum.
Við hvetjum félagsfólk til að kynna sér uppfærðar reglur Menntasjóðs STAG, nýta sér þau réttindi og þá þjónustu sem félagið býður upp á og hafa samband við skrifstofu STAG ef spurningar vakna.