Á næstu vikum hefjast vorþrif í orlofshúsum STAG. Samhliða þeim munum við taka upp umhverfisvænni þrif og skipta út hefðbundnum hreingerningarefnum í húsunum fyrir vörur frá Sonett.
Sonett framleiðir vottaðar, mildar sápur og hreinsiefni sem eru bæði betri fyrir notendur húsanna og umhverfið. Vörurnar brotna 100% niður í náttúrunni, vernda vatnsauðlindir og eru unnar úr náttúrulegum hráefnum eins og jurtum og steinefnum – án ensíma.
Við hvetjum alla til að ganga vel um bæði húsin okkar og náttúruna

Skiljum við þau eins og við viljum sjálf koma að þeim.