Sveitarfélag ársins

Könnunin Sveitarfélag ársins er nú í fullum gangi. Hún er unnin í samstarfi bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB í umsjón Mannauðssjóðsins Heklu og veitir mikilvæga innsýn í líðan og starfsaðstæður starfsfólks sveitarfélaga.
Við hvetjum félagsfólk Starfsmannafélags Garðabæjar sem hefur fengið könnunina senda til að taka þátt. Með því að svara leggur þú þitt af mörkum til að efla vinnustaði sveitarfélaganna og stuðla að áframhaldandi umbótum. 💙
Könnunin hefur verið send í tölvupósti frá Gallup til þeirra sem eru á útsendingarlista.
Allir sem svara fara sjálfkrafa í vinningapott þar sem sjö þátttakendur vinna gjafakort að verðmæti 15.000 kr.