Sumarlokun STAG

Skrifstofa STAG verður lokuð frá 6. júlí til og með 3. ágúst.

Á lokunartímanum er hægt að sækja og skila lyklum að orlofshúsum STAG í Reykjaskógi og á Spáni í Þjónustuveri Garðabæjar.

Lyklar að orlofshúsunum á Stykkishólmi og Akureyri eru í lyklaboxum á staðnum. Nánari upplýsingar um afhendingu lykla og aðgengi má finna í leigusamningi á Mínum síðum.

Opnunartími Þjónustuvers Garðabæjar:

  • Mánudaga–fimmtudaga: kl. 08:00–16:00
  • Föstudaga: kl. 08:00–14:00

Fyrirspurnir má senda á stag@stag.is. Þeim verður svarað eins fljótt og auðið er eftir að skrifstofan opnar á ný.

Við óskum öllu félagsfólki STAG gleðilegs og ánægjulegs sumars! ☀️