Styrktu þig í starfi með Starfsmennt

Eftir sumarfrí er tilvalið að huga að eigin starfsþróun, læra eitthvað nýtt og mæta endurnærð inn í haustið. Starfsmennt býður upp á fjölbreytt námskeið og fræðslu sem geta eflt hæfni þína, aukið öryggi í starfi og opnað á ný tækifæri.

Starfsmennt er fræðslusetur fyrir starfsfólk og stofnanir hins opinbera. Auk námskeiðahalds er hægt að leita til Starfsmenntar og fá samtal við náms- og starfsráðgjafa til að ræða ýmsar leiðir til starfsþróunar. Þjónustan er án endurgjalds fyrir þá hópa sem eiga aðild að Starfsmennt á grundvelli kjara- eða samstarfssamninga.

Félagsfólk STAG hefur aðgang að námskeiðum Starfsmenntar og við hvetjum ykkur til að kynna ykkur fjölbreytt námsframboð og nýta þau tækifæri sem þar eru í boði.

Skoða námskeið og fræðslu hjá Starfsmennt