STAG óskar Garðabæ innilega til hamingju með 50 ára afmælið.
Félagsfólk STAG hefur frá upphafi félagsins verið stór og mikilvægur hluti af starfsliði Garðabæjar. Hjá sveitarfélaginu starfar öflugur hópur fólks sem sinnir fjölbreyttum, krefjandi og mikilvægum störfum í almannaþjónustu.
Framlag starfsfólksins er órjúfanlegur hluti af starfsemi sveitarfélagsins og grundvöllur þeirrar þjónustu sem Garðabær veitir íbúum sínum á hverjum degi. STAG er stolt af félagsfólki sínu og því mikilvæga starfi sem það sinnir í þágu sveitarfélagsins og samfélagsins.
Í tilefni tímamótanna býður Garðabær til glæsilegrar afmælishátíðar um helgina. Við hvetjum félagsfólk og aðra íbúa til að taka þátt í hátíðarhöldunum og fagna þessum merka áfanga.
Enn og aftur, innilega til hamingju með afmælið!