STAG gefur sængur og kodda til áframhaldandi nýtingar

Á myndinni má sjá Birtu, starfsmann STAG, ásamt starfsmanni áfangaheimilisins við afhendinguna í dag…
Á myndinni má sjá Birtu, starfsmann STAG, ásamt starfsmanni áfangaheimilisins við afhendinguna í dag.

STAG afhenti í dag stuðnings- og áfangaheimili í Reykjavík lager af sængum og koddum sem teknir hafa verið úr notkun í orlofshúsum félagsins. Búnaðurinn er enn vel nýtanlegur og mun heimilið koma honum áfram eftir þörfum, meðal annars til annarra stuðnings- og áfangaheimila og neyðarskýla.

Með afhendingunni vill STAG leggja sitt af mörkum til samfélagsins og styðja við fólk sem stendur höllum fæti. Jafnframt er lögð áhersla á ábyrga nýtingu verðmæta og að búnaður sem enn er í góðu og nothæfu ástandi fái áframhaldandi hlutverk þar sem þörfin er mest.

Regluleg endurnýjun á búnaði í orlofshúsum félagsins er mikilvægur þáttur í því að tryggja félagsfólki STAG góðan og vandaðan aðbúnað. Það veitir okkur mikla gleði að geta samhliða þeirri endurnýjun stutt við mikilvæga starfsemi stuðnings- og áfangaheimila og neyðarskýla. Með framtakinu fara því saman vönduð þjónusta við félagsfólk, endurnýting og samfélagsleg ábyrgð.