Skrifstofa STAG verður lokuð fimmtudaginn 3. september vegna sameiginlegs trúnaðarmannadags á vegum BSRB.
Á deginum fá trúnaðarmenn aðildarfélaga BSRB fjölbreytta fræðslu sem styrkir þá enn frekar í mikilvægu hlutverki sínu. Einnig gefst þeim tækifæri til að kynnast trúnaðarmönnum annarra félaga, miðla reynslu og efla tengsl sín á milli.
Trúnaðarmenn eru hjarta stéttarfélaganna. Þeir eru mikilvægur tengiliður milli félagsins og vinnustaðanna og gegna lykilhlutverki í hagsmunagæslu og upplýsingamiðlun til félagsfólks.
Við hjá STAG erum einstaklega ánægð með hversu margir trúnaðarmenn félagsins hafa skráð sig til þátttöku. Það er bæði ánægjulegt og dýrmætt að sjá þann mikla áhuga sem þeir sýna á að efla sig og taka virkan þátt í trúnaðarmannastarfinu.