Skrifstofa STAG lokuð 16.–18. september

Skrifstofa STAG verður lokuð frá miðvikudeginum 16. september til og með föstudeginum 18. september vegna landsfundar bæjarstarfsmannafélaga.

Við biðjumst velvirðingar á þeim truflunum sem lokunin kann að valda. Á meðan verður fylgst með erindum sem berast á netfangið stag@stag.is og er félagsfólk vinsamlegast beðið um að beina erindum sínum þangað.

Hægt er að nálgast lykla að öllum orlofshúsum STAG á Íslandi í lyklaboxum. Nánari upplýsingar, þar á meðal númer lyklaboxa, er að finna í leigusamningi á Mínum síðum.