Síðustu forvöð - Sveitarfélag ársins

Könnunin Sveitarfélag ársins er unnin í samstarfi bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB í umsjón Mannauðssjóðsins Heklu og veitir mikilvæga innsýn í líðan og starfsaðstæður starfsfólks sveitarfélaga.
Við hvetjum félagsfólk Starfsmannafélags Garðabæjar til að taka þátt. Með því að svara leggur þú þitt af mörkum til að efla vinnustaði sveitarfélaganna og stuðla að áframhaldandi umbótum. 
Allir sem svara fara sjálfkrafa í vinningapott þar sem sjö þátttakendur vinna gjafakort að verðmæti 15.000 kr.