Orlofsnefnd STAG ákvað á fundi sínum 29. september síðastliðinn að fella niður punktakostnað við starfsaldursstyrk, svokallaðan Spánarstyrk. Áður kostaði full nýting styrksins 24 punkta.
Starfsaldursstyrkur gildir fyrir báðar eignir félagsins á Spáni. Hámarksfjárhæð hans miðast við 75% af leiguverði El Barranco í tvær vikur og getur því aldrei orðið hærri en 52.500 kr.
Félagsfólk sem hefur starfað hjá Garðabæ í fimm ár eða lengur getur sótt um styrkinn til orlofsnefndar eftir að úthlutun orlofseigna hefur farið fram. Þegar félagsmaður hefur fengið styrkinn úthlutaðan getur hann fyrst sótt um hann að nýju að tíu árum liðnum.
Við hvetjum félagsfólk til að nýta þau góðu kjör sem félagið býður upp á.