Vinnueftirlitið hefur gefið út nýtt fræðslumyndband um einelti á vinnustöðum í samstarfi við samtök aðila vinnumarkaðarins, Jafnréttisstofu og Embætti landlæknis. Efnið er gefið út í tilefni af degi gegn einelti, 8. nóvember.
Í myndbandinu er fjallað um hvernig einelti birtist og hvaða áhrif skipulag, stjórnun og samskipti geta haft á vinnuumhverfið. Með því fylgja gátlisti um snemmtæk viðbrögð við neikvæðum samskiptum og spurningakönnun um einelti, áreitni og ofbeldi.
Heilbrigð vinnustaðamenning byggist meðal annars á trausti, skýrum samskiptaviðmiðum og því að ábendingar fái viðbrögð og eftirfylgni. Stjórnendur gegna þar lykilhlutverki, en öll hafa áhrif á samskiptin á vinnustaðnum.
STAG hvetur félagsfólk, trúnaðarmenn og stjórnendur til að kynna sér efnið og nýta það til umræðu á vinnustöðum.