Mínar síður STAG

Kæra félagsfólk, við erum einstaklega glöð að geta sagt ykkur frá því að erum að innleiða Mínar síður.
Til að byrja með koma inn orlofskostir og gjafakort en bráðlega munu styrkir bætast við og trúnaðarmannasvæði. Með því ættuð þið að geta sótt stóran hluta af þjónustu félagsins á einum stað þegar ykkur hentar.
Viðmótið á mínum síðum er hannað fyrir tölvur, spjaldtölvur og síma og því tryggt að upplifun og þjónusta sé með allra besta móti óháð tegund þess tækis sem þið notið.
Við erum eins og stendur að færa orlofskostina, bókanir og gjafakortin frá gamla kerfinu yfir á mínar síður og því gæti verið að eignirnar komi ekki upp á mínum síðum í dag - þá eru þær bara á leiðinni 🔜
Hlekkur á mínar síður er hér: https://stag.orlof.is/
Mínar síður munu líka verða aðgengilegar af vefsíðu STAG.
Félagsfólk skráir sig inn með rafrænum skilríkjum eða auðkennisappi líkt og á eldri orlofsvefnum.
💡Við munum að sjálfsögðu halda ykkur upplýstum um þær viðbætur sem bætast við mínar síður um leið og þær koma inn.
Við erum einstaklega ánægð með þessa nýju viðbót við þjónustu félagsins og erum viss um að með henni geti félagsfólk notið enn frekar kosta félagsins - þegar þeim hentar.