Metfjöldi umsókna í Menntasjóð STAG

Stjórn Menntasjóðs STAG fundaði 20. ágúst og tók til umfjöllunar umsóknir sem borist höfðu frá síðustu úthlutun í lok júní og fram að fundardegi.

Úthlutað er úr Menntasjóði ellefu sinnum á ári. Ekki fer fram sérstök úthlutun í júlí heldur eru umsóknir sem berast á því tímabili teknar fyrir við úthlutun í ágúst.

Að þessu sinni barst metfjöldi umsókna í sjóðinn. Jafnframt bar meira en áður á umsóknum frá félagsfólki sem ekki hafði áður sótt um styrk. Það bendir til þess að aukinn sýnileiki og nýjar leiðir í þjónustu félagsins sé að skila sér til félagsfólks.

STAG hefur hlustað á ábendingar félagsfólks og óskir um aukið rafrænt aðgengi að þjónustu. Liður í þeirri vinnu var að færa umsóknir í Menntasjóð yfir á Mínar síður STAG. Þar geta félagsmenn nú nálgast umsókn um styrk úr sjóðnum beint af forsíðunni.

Það er mikið gleðiefni að sjá að þessi þróun skilar sér til félagsfólks og við höldum ótrauð áfram á sömu leið.

Nánari upplýsingar um skilyrði og úthlutunarfjárhæðir má finna í reglum Menntasjóðs STAG. Félagsfólk getur einnig skráð sig inn á Mínar síður STAG, þar sem upplýsingar um styrki birtast á forsíðunni.