Landsfundur bæjarstarfsmannafélaga haldinn í Vestmannaeyjum

Fulltrúar STAG á landsfundi bæjarstarfsmannafélaga 2026
Fulltrúar STAG á landsfundi bæjarstarfsmannafélaga 2026

Landsfundur bæjarstarfsmannafélaga fór fram í Vestmannaeyjum dagana 16.–18. september. Fulltrúar STAG sóttu fundinn ásamt fulltrúum bæjarstarfsmannafélaga víðs vegar af landinu.

Dagskráin var fjölbreytt og meðal annars fjallað um virkt stjórnarstarf, skilvirka fundi og ákvarðanatöku, stöðu kjaramála og félaganna og næstu skref í kjaraviðræðum. Þá ávarpaði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, fundinn og fjallaði um samstöðu og réttindabaráttu.

Á fundinum var einnig unnið í hópum, bæði innan félaga og þvert á félög, að ýmsum málefnum og verkefnum sem félögin standa frammi fyrir. Þar sköpuðust góðar og gagnlegar umræður og þátttakendur fengu tækifæri til að deila reynslu og hugmyndum og læra hverjir af öðrum.

Dagarnir voru bæði fróðlegir og skemmtilegir og gáfu jafnframt gott tækifæri til að styrkja tengsl og samstarf félaganna.

STAG þakkar STAVEY kærlega fyrir góðar móttökur og vel heppnaðan landsfund.