Starfsmannafélag Garðabæjar vekur athygli á því að launatöflur hækkuðu þann 1. apríl síðastliðinn og kom sú hækkun til greiðslu um mánaðamótin. Hækkunin nam 23.750 kr. eða að lágmarki um 3,50% sem sjá má í launatöflu nr. 3.
Samkvæmt kjarasamning á starfsmaður að fá greidda persónuuppbót 1. maí ár hvert.
Þann 1. maí 2026 er persónuuppbót 62.000 kr. eingreiðsla, miðað við 100% starf síðustu 12 mánuði.
Greitt er hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag. Hafi starfsmaður gengt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.