Góður fundur með trúnaðarmönnum STAG

Trúnaðarmenn STAG komu saman til fundar fimmtudaginn 19. nóvember. Mæting var góð og sköpuðust líflegar og gagnlegar umræður um fjölbreytt málefni félagsins.

Á fundinum var farið yfir sjóði og styrki STAG, undirbúning næstu kjarasamningslotu og málefni tengd fatapeningum. Einnig var rætt um fræðslu fyrir trúnaðarmenn og aðgengi þeirra að upplýsingum sem nýtast í starfinu. Fundarmenn ræddu jafnframt sérstöðu STAG og væntingar sínar til félagsins.

Trúnaðarmenn eru mikilvægur tengiliður milli félagsfólks, STAG og vinnuveitenda. Þeir veita félagsfólki stuðning á vinnustaðnum, koma sjónarmiðum þess á framfæri og vekja athygli á því sem betur má fara. Trúnaðarmenn STAG hafa verið ötulir við að koma ábendingum á framfæri við bæði félagið og vinnuveitendur. Þær hafa orðið til þess að ýmis mál hafa verið skoðuð nánar og leitt til úrbóta.

Við hjá STAG erum stolt af þessum öfluga hópi og þökkum trúnaðarmönnum fyrir framlag þeirra á vinnustöðunum og góðar umræður á fundinum.