Hinsegindagar standa nú yfir og verður hápunkti náð á laugardaginn með gleðigöngunni. Gengið er frá Hallgrímskirkju kl. 14.
Í gleðigöngunni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín. Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur unnist í baráttunni.
Stéttarfélög taka að sjálfsögðu þátt og ganga saman, að þessu sinni munu félagar í BSRB, KÍ, ASÍ og BHM ganga saman við dúndrandi undirleik Lúðrasveitar verkalýðsins. Félagar í STAG eru hvattir til að taka þátt.
Við óskum öllum gleðilegra hinsegindaga og styðjum heilshugar réttindabaráttu hinsegin fólks.