Fundur með trúnaðarmönnum

Fimmtudaginn 19. mars síðastliðinn var stór trúnaðarmannadagur hjá félaginu. Við byrjuðum á því að funda með trúnaðarmönnum STAG. Þar var farið yfir nýjungar hjá STAG, það helsta hjá BSRB og góðar umræður um hin ýmsu mál sem koma á borð trúnaðarmanna.
Eftir góðan fund færðum við okkur yfir í GKG þar sem við tók sameiginlegur fundur með trúnaðarmönnum Starfsmannafélaga Hafnarfjarðar og Mosfellsbæjar. Á fundinum var rætt um frumvarp fjármálaráðherra um afnám áminningarskyldunnar og mikilvægi þess að standa vörð um réttindi opinberra starfsmanna. Að því loknu var hópavinna um störf trúnaðarmanna. Hrannar Már Gunnarsson, lögfræðingur BSRB, mætti og hélt áhugaverða og gagnlega kynningu á helstu réttindum og skyldum opinberra starfsmanna. Að lokum hélt Pálmar Ragnarsson, fyrirlesari og körfuboltaþjálfari, skemmtilegan fyrirlestur um jákvæð samskipti.
 
Við erum einstaklega ánægð með vel heppnaðan dag og þakklát trúnaðarmönnum félagsins fyrir þeirra mikilvæga og góða starf.