50 ár frá stofnun STAG

Nokkrir af fyrrum formönnum og núverandi formaður STAG. F.v. Kristján Hilmarsson, Vala Dröfn Hauksdó…
Nokkrir af fyrrum formönnum og núverandi formaður STAG. F.v. Kristján Hilmarsson, Vala Dröfn Hauksdóttir, Gunnar Hrafn Richardsson og Viðar Helgason. Mynd tekin á aðalfundi STAG 2026.

Í maí síðastliðnum voru 50 ár liðin frá stofnun Starfsmannafélags Garðabæjar. Af því tilefni langar okkur að varðveita sögu félagsins og safna saman minningum, frásögnum og myndum frá félagsfólki, fyrr og nú.

Áttu myndir úr orlofshúsum, af fundum, viðburðum eða öðrum stundum sem tengjast félaginu? Eða býrðu yfir skemmtilegri sögu sem mætti varðveita? Þá viljum við endilega heyra frá þér.

Myndir og frásagnir má senda á stag@stag.is.