Fara í efni

Kjaraviðræður í hnút

Kjaraviðræður í hnút.

Slitnað hefur upp úr kjaraviðræðum Starfsmannafélags Garðabæjar sem er
í samfloti við tíu önnur aðildarfélög BSRB, og Sambands íslenskra
sveitarfélaga.

Deilan snýr að sameiginlegri kröfu félaganna um að starfsfólk sveitarfélaga,
sem vinna m.a. á leikskólum, grunnskólum, sundlaugum,
íþróttamiðstöðvum og þjónustu við fatlað fólk fái sömu laun fyrir sömu eða
sambærileg störf innan sömu stofnunar eða sveitarfélags og aðrir hafa
þegar fengið frá 1. janúar.

Kjaradeilunni hefur verið vísað til ríkissáttasemjara en fundir undir hans
stjórn hafa engu skilað. Því hefur ekki verið boðað til frekari fundarhalda.
Félögin eru um þessar mundir að ræða næstu skref við trúnaðarmenn og
félagsfólk til að knýja megi fram nauðsynlegar og sanngjarnar kjarabætur
fyrir starfsfólk sveitarfélaga. Sömu laun fyrir sömu störf frá 1. janúar!