Fara í efni

Sumarfrí á skrifstofunni 2017

Skrifstofa STAG verður lokuð í sumar frá 26. júní til og með 2. ágúst vegna sumarleyfis starfsmanns.  Opnum s.s. aftur þann 3.ágúst.

Á meðan lokað er verður lyklaafhending og lyklaskil fyrir Reykjabæ, Skógarbæ og El Barranco í Þjónustuveri Garðabæjar, Bæjarskrifstofum, Garðatorgi 7.  Aðrir eru með lyklakóða á leigusamningi sínum.

Við seljum ýmsa miða á orlofsvefnum okkar http://orlof.is/stag/index.php og hvetjum við félaga til að notfæra sér þá.  Þar má meðal annars nefna; hótelmiða hjá Fosshótelum og Eddu hótelum og gjafabréf Icelandair.  Alla miða þarf að prenta út beint af vefnum en ekki fá þá afhenta hjá STAG.

Nánari upplýsingar um alla möguleikana er að finna inn á orlofsvefnum. Miða í Hvalfjarðargöngin þarf að kaupa á netinu, prenta þarf út kvittunina og koma með hana í þjónustuver Garðabæjar sem afhendir miðana gegn kvittuninni. Þjónustuverið er staðsett á Bæjarskrifstofum Garðabæjar.

Ef eitthvað annað er þá má hafa samband við formann okkar Kristján Hilmarsson í netfanginu:  formadur@stag.is 

Með félagskveðju og ósk um gleðilegt sumar.