Fara í efni

Skógarbær kominn aftur í útleigu

Viðgerðum er lokið í Skógarbæ og er hann kominn í fulla leigu. Þó nokkrar endurbætur voru gerðar á bústaðnum. Meðal annars er ný eldhúsinnrétting með öllum nýjum tækjum. Ný rúm voru keypt í húsið og í stofu voru húsgögn endurnýjuð að hluta.  Í Reykjabæ hefur einnig verið skipt um rúm og hluta af húsgögnum í stofu.