Fara í efni

Lokun orlofshúss vegna viðgerða og sölu

Í haust verða aðeins 3 orlofshús til leigu þar sem leki kom í annan bústaðinn okkar í Reykjaskóginum og söluferli er farið af stað í bústaðnum okkar í Kjarnaskógi. Húsið í Kjarnaskógi verður þó í leigu í september.

Þar sem óljóst er hvernig framvinda mála verður, hefur orlofsnefnd tekið þá ákvörðun að taka Skógarbæ úr leigu tímabilið september og október.

Ef viðgerðum á Skógarbæ verður lokið fyrr, þá verður bústaðurinn settur í leigu.

Það stendur til að byggja nýtt hús á sömu lóð í Kjarnaskógi og er því óljóst hvenær það mun verða tilbúið.