Fara í efni

Kjaraviðræður

Kjaraviðræður, stutt sumarhlé gert, starfsmenn sveitarfélaga fá innágreiðslu

Á samningafundi stéttarfélaga bæjarstarfsmanna og BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga í gær  þann 1. júlí var undirritað samkomulag um stutt sumarhlé á kjaraviðræðum sem felur í sér endurskoðaða viðræðuáætlun aðila og samkomulag um framhald kjaraviðræðna. Samkvæmt texta samkomulagsins þá eru aðilar sammála því að þann 1. ágúst 2019 verði hverjum starfsmanni greidd hlutfallslega  miðað við starfshlutfall  innágreiðsla á væntanlegan samning að upphæð kr. 105.000, miðað við starfstíma 1. apríl 2019,  til og með 30. júní 2019. Starfsmenn í fæðingarorlofi og tímavinnufólk eiga einnig rétt á eingreiðslu.  Greiðslan er til komin vegna tafa sem orðið hafa á gerð kjarasamninga. Í nýrri viðræðuáætlunum kemur fram að stefnt sé að því að ljúka nýjum kjarasamningin fyrir 15. september, en samningar flestra aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá byrjun apríl.

 Í samningaviðræðum við ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg hefur verið unnið að samkomulagi um útfærslu á styttingu vinnuvikunnar, launaþróunartryggingu og fleira og leggur bandalagið áherslu á að þessi flóknu mál verði unnin faglega.

Í endurskoðaðri viðræðuáætlun við ríkið kemur fram að þar sem langt sé síðan kjarasamningar hafi runnið út verði greidd innágreiðsla inn á nýja samninga, 105 þúsund krónur.

 Samskonar ákvæði eru í endurskoðuðum áætlunum vegna samninga við Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg sem aðildarfélög BSRB hafa undirritað, eða munu undirrita á næstu dögum.

Þar er einnig kveðið á um friðarskyldu til 15. september og að stutt hlé verði gert á viðræðum á meðan skrifstofa Ríkissáttasemjara er lokuð í sumar, enda hefur reynslan sýnt að lítið hefur gengið í kjaraviðræðum yfir hásumarið.