| Fréttir af aðalfundi 2010 og fundargerð |
|
| föstudagur, 18 júní 2010 12:17 | |
|
Á aðalfundi STAG, sem haldinn var þriðjudaginn 15. júní, var Ingunn Mjöll Birgisdóttir kjörin inn í stjórn félagsins til eins árs. Jafnframt var formanni félagsins, Völu Dröfn Hauksdóttur, veitt endurnýjað umboð fundarins til að halda áfram sem formaður. Stjórn hefur haldið fyrsta stjórnarfund og skipt með sér verkum:
Reikningar félagsins fyrir árið 2009 voru samþykktir á fundinum. Fundargerð aðalfundar STAG í Garðabergi þriðjudaginn 15. júní 2010 kl. 17:17. Vala Dröfn Hauksdóttir bauð félagsmenn velkomna. Stjórn STAG útnefndi Lúðvík Hjalta Jónsson sem fundarstjóra og Jónu Guðrúnu Oddsdóttur sem fundarritara. Þetta var samþykkt af félagsmönnum. Lúðvík Hjalti fór yfir dagskrána. Skýrsla stjórnar: Vala Dröfn, formaður STAG kynnti skýrslu stjórnar. Reikningar félagsins: Vala Dröfn kynnti reikninga félagsins fyrir árið 2009 og voru þeir samþykktir. Lagabreytingar: Gísli Valdimarsson lagði til að lög félagsins yrðu endurskoðuð og kosin yrði fimm manna nefnd af stjórninni til að sinna því starfi. Nefndin myndi síðan skila af sér í febrúar 2011. Félagsgjöld: Stjórnin lagði til að félagsgjöld yrðu óbreytt og var það samþykkt. Kosning stjórnar: Ný stjórn var kosin fyrir ári og situr því eitt ár í viðbót. Guðfinna Árnadóttir fór úr stjórninni sem gjaldkeri. Ingunn Mjöll Birgisdóttir gaf kost á sér og var það samþykkt. Skoðunarmenn reikninga: Óbreytt. Fulltrúar í menntasjóði: Óbreytt. Fulltrúar í orlofsnefnd: Helga G. Sigurðardóttir (varamaður) fór inn sem aðalmaður í stað Guðfinnu Árnadóttur. Kjósa þurfti varamann í stað Helgu og gaf Gunnar Pálmason kost á sér og var það samþykkt. Önnur mál: Vala Dröfn Hauksdóttir fór með vísu fyrir Gísla Valdimarsson og afhenti honum pakka þar sem hún þakkaði honum fyrir vel unnin störf í þágu félagsins undanfarna áratugi. Gísli var formaður STAG á árunum 1988 til 2001. Dóra Þórisdóttir spurði um rétt starfsmanna sem ná ekki 50% starfshlutfalli. Bent var á lög félagsins. Við endurskoðun gætu þau breyst. Jóna Oddsdóttir spurði um rétt Jóns sem sér um að halda Garðabæ hreinum varðandi inngöngu í starfsmannafélagið. Jón er í verkslýðsfélaginu Hlíf. Aðrar spurningar: Spurt hvort hægt væri að safna upp styrktarsjóði. Ekki hægt – fyrnist 31. des. ár hvert. Vala Dröfn spurði hvort félagsmenn væru samþykkir því að leigja Spánarhúsin til kunningja og vina félagsmanna til að fá inn tekjur. Félagsmenn samþykktu. Erla Bil spurði hvort reglur um greiðslu úr Vísindasjóði væru ekki óþarflega strangar. Sjóðurinn er kjarasamnings bundinn. Jóna G. Oddsdóttir fundarritari. |