n w    w w w w

Starfsmannafélag Garðabæjar
Þú ert hér:   Forsíða Sjóðir
large small default
Sjóðir Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
fimmtudagur, 13 mars 2008 21:20

Þeir sjóðir sem greitt er í skv. ákvæðum kjarasamninga eru Orlofssjóður, Menntasjóður, Lífeyrissjóður, Fjölskyldu- og styrktarsjóður og Vísindasjóður.

MENNTASJÓÐUR
Umsóknareyðublað í Menntasjóð má fá í þjónustuveri Garðabæjar, Garðatorgi 7 eða hér: http://www.gardabaer.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=44867.

Styrkupphæðir hjá Menntasjóð:
Eftir 1 ár í starfi: 20.000
Eftir 3 ár í starfi: 30.000
Eftir 5 ár í starfi: 40.000

Úthlutað er einu sinni í mánuði.

Í stjórn menntasjóðs eru Edda Tryggvadóttir og Trausti Valsson.

VÍSINDASJÓÐUR
Reglur Vísindasjóðs STAG: http://www.gardabaer.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=6317, leiðbeiningar vegna sjóðsins eru hér: http://www.gardabaer.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=6313  og hér: http://www.gardabaer.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=6311 

STYRKTARSJÓÐUR
Upplýsingar um Fjölskyldu og styrktarsjóð BSRB má finna hér: http://www.styrktarsjodur.bsrb.is/ . Eyðublað fyrir umsókn í styrktarsjóðinn má nálgast í þjónustuveri Garðabæjar eða hér á þessari slóð: http://www.styrktarsjodur.bsrb.is/eydublod/umsokn_styrktarsjodurBSRB_2009.pdf

Stjórn Menntasjóðs:

Edda Tryggvadóttir - Bæjarskrifstofum, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Trausti Valsson - Bæjarskrifstofum, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Fulltrúar STAG í stjórn Vísindasjóðs eru:

Brynjólfur Brynjólfsson - Bæjarskrifstofum, Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Eyjólfur Guðmundsson - Þjónustumiðstöð Garðabæjar 

 


Upplýsingar vegna launaðara námsleyfa fyrir starfsmenn Garðabæjar.

Reglur um launað námsleyfi fyrir starfsmenn Garðabæjar

                                                                   1. gr.

Í þeim tilgangi að skapa starfsmönnum Garðabæjar möguleika á að afla sér viðbótarþekkingar sem nýtist á sérsviði þeirra í starfi hjá bæjarfélaginu og með vísan til heimildarákvæða þess efnis í kjarasamningum samþykkir bæjarstjórn eftirfarandi verklagsreglur um launað námsleyfi.

2. gr.

Starfsmaður sem uppfyllir ákvæði um heimild til að fá launað námsleyfi skv. þeim kjarasamningi sem hann þiggur laun eftir skal eiga kost á að sækja um slíkt leyfi.  Hámarkslengd leyfis ákvarðast af rétti starfsmanns skv. kjarasamningi viðkomandi en getur þó aldrei orðið meira en eitt ár.  Starfsmenn geta einnig sótt um leyfi til skemmri tíma.  Heimilt er að skipta leyfinu á tvö skólaár.

3. gr.

Umsóknir um námsleyfi skulu sendar starfsmannahaldi Garðabæjar fyrir 1. apríl ár hvert og stefnt skal að því að bæjarráð afgreiði umsóknir fyrir 15. maí.  Í umsókninni skulu koma fram nákvæmar upplýsingar um fyrirhugað nám, námstíma og starfsferil umsækjanda.  Fjöldi samþykktra námsleyfa ræðst af fjölda umsókna, lengd samþykktra leyfa og fjárveitingu úr bæjarsjóði hverju sinni.  Gert er ráð fyrir að á fjárhagsáætlun verði árlega  varið fjárhæð sem nemur einu stöðugildi til þess að veita starfsmönnum Garðabæjar launað námsleyfi.

4. gr.

Við mat á umsóknum skulu eftirfarandi atriði höfð til hliðsjónar:

Mikilvægi námsins fyrir starf stofnunarinnar/bæjarfélagsins.
Starfsaldur umsækjanda.
Aðgengi starfsmanns að launuðu námsleyfi annars staðar, svo sem hjá stéttarfélagi.
Fyrri umsóknir viðkomandi starfsmanns um námsleyfi.
5. gr.

Starfsmaður sem fær launað námsleyfi fær greidd föst mánaðarlaun í þeim launaflokki er hann tekur laun eftir, en annar kostnaður svo sem ferða- og námskostnaður er ekki greiddur.  Laun í námsleyfi miðast við föst laun og meðaltal starfshlutfalls þann tíma er rétturinn vannst á hafi starfsmaður eigi verið í fullu starfi allan tímann.

6. gr.

Að námi loknu skili styrkþegar prófskírteini, vottorði um námslok og/eða skriflegri greinargerð um hvernig námsleyfi var varið.  Þessi gögn berist eigi síðar en 3 mánuðum eftir að launagreiðslum í námsleyfi lýkur.

7. gr.

Samþykkt umsóknar um launað námsleyfi er við það miðuð að starfsmaður komi aftur til starfa hjá Garðabæ að námi loknu og skal í því efni miðað við a.m.k. þriggja ára satarfstíma að loknu námsleyfi í eitt ár.

 

Samþykkt í bæjarráði Garðabæjar

15. júlí 2003

Guðjón Erling Friðriksson

bæjarritari

Síðast uppfært ( fimmtudagur, 18 mars 2010 16:40 )