| Félagið |
|
|
|
| fimmtudagur, 13 mars 2008 20:54 | |
|
Starfsmannafélag Garðabæjar
Starfsmannafélag Garðabæjar var stofnað 20. maí 1976 í kjölfar þess að bærinn fékk kaupstaðaréttindi. Á stofnfundinum voru tuttugu og tveir félagar og þar að auki Kristján Thorlacius, formaður BSRB. Hvatinn að stofnun félagsins var innganga að BSRB til að öðlast réttindi opinberra starfsmanna, ná fram kjarasamningi á við önnur starfsmannafélög bæjarfélaga og leggja áherslu á ýmis sérkjör. Fyrsta verk nýrrar stjórnar, sem í voru Jón M. Björgvinsson formaður, Gísli Valdimarsson ritari og Soffia Haraldsdóttir gjaldkeri, var því að sækja um aðild að BSRB. Í fyrstu fundargerðum kemur fram að helsta umræðan hafi verið um launamál og leiðir til að ná sambærilegum samningum og starfsmenn annarra bæjarfélaga höfðu. Einnig bregður fyrir í fundargerðum ýmsum staðbundum kröfum s.s. að laun allra yrðu greidd mánaðarlega, greiddir yrðu fæðispeningar þar sem ekki var mötuneyti og ósk um að gerðar yrðu starfslýsingar fyrir alla starfsmenn. Ekki er að sjá að mikil átök hafi verið gegn viðsemjendum um launamál og því má ætla að samningamálin hafi yfirleitt gengið vel, en í byrjun var samið beint við Bæjarstjórn Garðabæjar um kaup og kjör. Með starfsmatskerfinu árið 1986 kom til skjalanna launanefnd á vegum sveitarfélaga sem fékk umboð til að semja fyrir hönd bæjarfélagsins gagnvart starfsmannafélaginu. Úr varð að bæjarstarfsmannafélögin ákváðu að standa saman og átti félagið aðild að Samfloti bæjarstarfsmannafélaga í nokkrum samningahrinum. Síðustu ár hefur félagið samið beint við Launanefnd sveitarfélaga. Ein af vörðum félagsins er öflugur orlofssjóður sem náðist inn í fyrsta kjarasamningi við Garðabæ um 1976 þar sem ákveðið var að greiða 1,8% af öllum launum félagsmanna í orlofssjóðinn. Má e.t.v. þakka sveitarstjórn Seltjarnarness þann góða árangur. Sagan segir að þegar sveitarfélög á Reykjanesi tóku sig saman til að semja við starfsmannafélögin hafi ein krafan í samingnum verið stytting vinnuviku í fjörutíu stundir. Var samningurinn alls staðar samþykktur nema á Seltjarnarnesi þar sem sveitarstjórn felldi samninginn vegna styttingarákvæðisins. Í Garðabæ vildu sveitar-stjórnarmenn greiða fyrir samningamálum og buðu ríflegt framlag í orlofssjóð í stað styttingar. Gengið var að þessari sárabót og samið í Garðabæ. Nokkrum mánuðum síðar var reyndar lögleidd fjörutíu stunda vinnuvika í landinu. Félagið eignaðist fyrsta orlofshúsið í Stóru Skógum 1983. Var það hús í eigu félagsins í um fimmtán ár. Snemma kom upp umræða um að kaupa orlofshús á Spáni og eignast félagið sitt fyrsta hús þar 1986. Það hús var síðar selt svo og hús númer tvö. Nú á félagið nýtt glæsilegt hús, það þriðja í röðinni, sem tekið var í notkun sumarið 2003. Félagið á einnig stórglæsilega orlofsbústaði, tvo nýlega í Reykjaskógi, einn við Kjarnaskóg á Akureyri, bústað að Úlfsstöðum við Egilsstaði og búið er að festa kaup á nýju orlofshúsi við Stykkishólm, sem verður tilbúið sumarið 2004. Í byrjun fékk félagið inni með starfsemi sína á bæjarskrifstofu í Sveinatungu og í Flataskóla. Síðar var starfsemin í gamla pósthúsinu að Goðatúni 2 þar til það húsnæði var rifið. Því næst leigði félagið skrifstofuaðstöðu í Lyngási. Tíðir fundir voru þó við eldhúsborðið hjá formönnum heima fyrir. Þótti stjórn, sem tók við árið 2001, rekstur skrifstofu nokkuð kostnaðarsamur fyrir ekki stærra félag. Í dag ríkir samkomulag við vinnuveitanda um að nýta húsnæði bæjarskrifstofu við Garðatorg og aðra aðstöðu sem bæjarfélagið hefur upp á að bjóða fyrir stærri fundi. Lögheimili Starfsmannafélagsins er því við Garðatorg 7 og lætur stjórn vel að sambýlinu við vinnuveitandann. Við þetta fyrirkomulag sparast fjármagn svo og mikill tími stjórnarmanna við að hafa opna sérstaka skrifstofu. Félagsmenn, sem í dag eru 255 talsins, hafa aðgang að stjórnarmönnum nánast þegar þeir vilja í síma. Segja má að skrifstofan hafi flutt sig á Netið og þar er hægt að nálgast flestar upplýsingar og hafa samskipti við stjórn félagsins. Heimasíðan er www.stag.is Formenn félagsins frá upphafi: Jón M. Björgvinsson 1976-1983 Páll Ingimarson 1983-1988 Gísli Valdimarson 1988-2001 Gunnar Hrafn Richardson 2001 - 2007 Gunnar Örn Erlingsson 2007- 2008 Vala Dröfn Hauksdóttir tók við formennsku haustið 2008. Að mati stjórnarinnar eru helstu baráttumál starfsmannafélaga jafnrétti kynja til launa og réttlátt mat starfa. Auk þess er það réttindamál að fá fram viðbótarlífeyrisframlag til handa bæjarstarfsmönnum. Auka má virðingu almennings fyrir mikilvægi starfa í almannaþjónustu, sem segja má að gangi lengra í lagalegum skyldum en gildir um störf á almennum vinnumarkaði. Starfsmannafélag Garðabæjar hefur hingað haft ríkan skilning bæjaryfirvalda fyrir tilvist sinni og tilgangi. Seint verður ofmetin gagnsemi félagsins til að byggja upp liðsheild starfmanna og stuðla að fyrirtækjamenningu. Haft er að leiðarljósi að halda kostnaði við rekstur félagsins í lágmarki. Hefur stjórnin því kosið að sækja sérfræðiaðstoð, ef á þarf að halda, til BSRB og/eða kaupa út einstaka verkþætti í starfinu þegar svo ber undir. |
|
| Síðast uppfært ( mánudagur, 29 júní 2009 16:33 ) |