n w    w w w w

Starfsmannafélag Garðabæjar
Þú ert hér:   Forsíða Fréttir Fréttir Framlenging kjarasamninga
large small default
Framlenging kjarasamninga Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
fimmtudagur, 09 júlí 2009 13:38

STAG hefur skrifað undir framlengingu kjarasamninga, annarsvegar við ríkið og hinsvegar við Garðabæ. Rétt er að taka fram strax að samningar þessir taka ekki gildi fyrr en þeir hafa verið formlega samþykktir af félagsmönnum og atvinnurekendum, samþykki eða neitun þarf að liggja fyrir eigi síðar en 14. ágúst. Greiðslur í samræmi við samning þennan munu því ekki verða fyrr en 1. september.

Verði samkomulag þetta samþykkt þá gildir það til 30. nóvember 2010.  Sjá nánar:

Helstu atriði samnings STAG við Garðabæ (LN - launanefnd sveitafélaga):

Orlofsuppbót 2010 verður 25.800

Lágmarkslaun frá 1. júlí 2009 verði 157.000

Mánaðarlaun undir 180 þús hækka um 6.750 frá 1. júlí 2009. Laun frá 179.999 upp í 204.999 hækka minna og í stiglækkandi þrepum. Laun hærri en 210 þús hækka ekkert. Þann 1. nóvember mun aftur koma sambærilegt ferli nema hvað stiglækkandi launahækkun nær upp í 220 þús. Þetta má sjá hér í meðfylgjandi töflu. 

 

Samning STAG og LN í heild sinni má sjá hér: http://www.bsrb.is/files/SamnSTAGogLN2009_575235.pdf 

Helstu atriði í samkomulagi STAG við ríkið:

Samningur STAG við ríkið er á svipuðum nótum, lægstu laun hækka mest. Ríkissamninginn má sjá hér: http://www.bsrb.is/files/samningur%2009_641935187.pdf

Holtsbúð hefur ekki enn gengið frá samningamálum af sinni hálfu gagnvart STAG en verið er að vinna í þeim málum.

Kynningarfundir og atkvæðagreiðslur

Í ljósi þess að mjög margir eru í sumarfríum um þetta leiti árs þá verður ekki boðað til kynningarfunda fyrr en í byrjun ágúst. Atkvæðagreiðslur fara fram samhliða kynningarfundum.

Með sumarkveðjum

Vala Dröfn Hauksdóttir, formaður.