| Stjórnarfundur 1, 25. júní 2009 |
|
|
|
| mánudagur, 29 júní 2009 16:23 | |
|
Stjórnarfundur STAG 25. júní 2009 Fyrsta verk stjórnar var að skipta með sér verkum eftir að ný stjórn myndaðist á síðasta aðalfundi. Stjórnin mun starfa eftirfarandi:
Vala Dröfn sagði frá samningseiningarfundum sem hún hefur setið undanfarna mánuði og kynnti stöðugleikasáttmálann. Skrifað var undir stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar 25. júní 2009. Markmið sáttmálans er að stuðla að endurreisn efnahagslífsins. Í framhaldi af undirskriftinni munu opinberir starfsmenn hefja samningaviðræður við ríki og sveitarfélög um nýja kjarasamninga. Linkur á sáttmálann er hér: http://www.bsrb.is/files/stodugleikasattmalisumar2009_1380582819.pdf Stjórn STAG á fund með bæjarstjóra og bæjarritara í ágúst til að fá upplýsingar um stöðu mála hjá félagsmönnum STAG. Rætt um sjóði félagsins. Öll orlofshús innanlands eru fullbókuð í sumar og komnir eru biðlistar. Nokkrar vikur hafa farið á Spáni og í Kaupmannahöfn, enn eru þó örfáar vikur lausar þar. Stefna þarf að því að setja inn uppfærslur á orlofshúsum inn á heimasíðu STAG svo félagsmenn geti fylgst með því hvaða hús eru laus og á hvaða tíma. Allar umsóknir þurfa að vera vel aðgengilegar á heimsíðu STAG og auðvelda aðgengi með rafrænni skráningu. Ekki fleira bókað |