n w    w w w w

Starfsmannafélag Garðabæjar
Þú ert hér:   Forsíða Fundargerðir Fundargerð aðalfundar STAG
large small default
Fundargerð aðalfundar STAG Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
mánudagur, 29 júní 2009 16:11

Aðalfundur STAG í Garðabergi,  miðvikudaginn 3. júní 2009, kl. 19:30

Vala Dröfn Hauksdóttir bauð félagsmenn velkomna og stjórn STAG útnefndi Gunnar Pálmason sem fundarstjóra og Soffíu Dagmar Þorleifsdóttur sem fundarritara.  Þetta var samþykkt af félagsmönnum.

Gunnar fór yfir dagskrána og kallaði fram fyrsta lið.

• Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins.  Vala Dröfn Hauksdóttir, formaður STAG, kynnti  skýrslu stjórnar.

• Reikningar félagsins.  Ársreikningar eru ekki tilbúnir eins og fram kom í fundarboðinu.  Eymundur Einarsson endurskoðandi hefur tekið við reikningum félagsins.  Félagið stendur vel fjárhagslega.

• Lagabreytingar.  Engar lagabreytingar bárust.

• Félagsgjöld.  Stjórnin lagði til að félagsgjöld yrðu óbreytt og var það samþykkt.

• Kosning stjórnar.  Sitjandi formaður, Vala Dröfn Hauksdóttir, gaf kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður.  Engin mótframboð bárust og var það samþykkt.  Guðfinna Árnadóttir, sitjandi gjaldkeri, gaf kost á sér áfram.  Engin mótframboð bárust og var það samþykkt.  Trausti Valson gaf einnig kost á sér áfram sem meðstjórnandi.  Var það samþykkt.  Tvo sæti í stjórn voru laus, ritari og meðstjórnandi.  Soffía Dagmar Þorleifsdóttir gaf kost á sér sem ritari og Sigurður Hafliðason gaf kost á sér sem meðstjórnandi.  Var það samþykkt.  Engin mótframboð bárust í þessi tvo sæti.

• Kosning skoðunarmanna reikninga.  Hilmar Bjartmarz hætti og Gunnar Pálmason kom inn í staðinn.  Skoðunarmenn reikninga eru því Anna Nilsdóttir og Gunnar Pálmason og til vara er Hafþór Árnason

• Kosning í menntasjóð.  Edda I. Tryggvadóttir og Trausti Valsson gáfu kost á sér áfram.  Engin mótframboð bárust og var það samþykkt.

• Kosning í vísindasjóð.  Brynjólfur G. Brynjólfsson og Eyjólfur Guðmundsson gáfu kosta á sér áfram.  Engin mótframboð bárust og var það samþykkt.

• Kosning í orlofsnefnd.  Dröfn Ágúststdóttir, Eyjólfur Guðmundsson, Guðfinna Árnadóttir og Helga G. Sigurðardóttir (varamaður) gáfu kost á sér áfram í orlofsnefnd og var það samþykkt.  Kjósa þurfti um einn vara mann í stað Kolbrúnar Sigmundsdóttir sem hefur látið af störfum hjá Garðabæ.  Sigurður Hafliðason gaf kost á sér og var það samþykkt.

• Önnur mál.
Vala Dröfn, formaður, tók til máls.  Vala Dröfn þakkaði traustið sem henni er sýnt til endurkjörs.  Sagði hún að kjósa þarf 4 fulltrúa og 4 varafulltrúa á þing BSRB.  Stjórn mun sitja inni sem fulltrúar og kosnir voru því þrír varamenn, Erla Bil Bjarnardóttir, Eyjólfur Guðmundsson og Dröfn Ágústsdóttir.

Gert var kaffihlé.

• Haldið var áfram með önnur mál.

• Merki félagsins.  Efnt var til samkeppni um merki félagsins en félagið hefur ekki átt sitt merki. Var það Ágústa Guðmundsdóttir sem hannaði verðlaunamerkið.  Vala Dröfn, Trausti og Guðfinna afhentu Ágústu verðlaunin.

• Orlofsnefnd nefndi að oft hafi komið fyrirspurnir um hvort ætti að leyfa gæludýr í einum af húsum STAG og þá helst í Reykjaskógi.
Tillaga var sett fram að Reykjabær, eldra húsið í Reykjaskógi, yrði húsið sem mætti koma með gæludýr í og þetta yrði til reynslu næsta vetur (fram að sumarorlofi).  Það var samþykkt með 7 atkvæðum á móti 1 og 6 sátu hjá.

• Orlofsnenfd var spurð að því hvort hafi verið athugað með hús BSRB í Munaðarnesi sem hafa verið til sölu.  Nefndin kannaði málið og þótti óhagstætt að kaupa hús þar, ekki síst vegna sameiginlegst rekstrarkostnaðar á svæðinu.

• Skoða þarf með kaup á nýju orlofshúsi sem væri ekki í „þorpi“, helst á Suðurlandi og að hámarki tveggja tíma akstur frá höfuðborginni.

• Eyjólfur Guðmundsson þakkaði Ágústu Guðmundsdóttur fyrir hönnunina á fínu merki og einnig félaginu með að eiga loks eigið merki.  Eyjólfur vildi einnig þakka fyrir frábært framtak með útilegu- og veiðikortin á vegum orlofsnefndarinna.

• Spurning úr röðum félagsmanna kom um hvort seta í stjórn eða nefndum væru launuð.  Launum er þannig háttað að útborguð árslaun formanns STAG eru meðaltal af einum mánaðarlaunum lægsta og hæsta virka taxta hjá STAG.  Laun gjaldkera eru 60% af launum formanns og laun ritara eru 40% af sömu launum.  Formaður orlofsnefndar fær 20% af launum formanns STAG.  Laun fyrir stjórnarfundi eru 60% af launum fyrir nefndarsetu hjá Garðabæ 1. maí 2008 og laun fyrir nefndarfundi í orlofsnefnd, menntasjóði og vísindasjóði eru 40% af sömu launum.

• Vala Dröfn, formaður, ræddi um kjaramál og kjarasamninga.

• Skoða þarf laun lægstlaunuðu félagsmannanna þar sem margir eru að fá skerðingu á launum – minnkun á starfshlutfalli.  Einnig að athuga með fækkun nemenda í skólum bæjarins á meðan verið er að stækka einn skóla.

• Félagsmönnum finnst viðmót yfirboðara hafa harnað og oft á tíðum skreytt með krepputali þegar félagsmönnum finnst að yfirboðarar ættu frekar að sýna stuðning og gefa klapp á bakið.

• Málefni Vísindasjóðs rædd.

Fundarstjóri óskaði félagsmönnum til hamingju með nýja stjórn og sleit fundi kl. 21:35

Fundarritari:
Soffía Dagmar Þorleifsdóttir