n w    w w w w

Starfsmannafélag Garðabæjar
Þú ert hér:   Forsíða
large small default
14. stjórnarfundur STAG Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
þriðjudagur, 11 nóvember 2008 14:23

14. STAG stjórnarfundur 23.október 2008.

Mættir Trausti, Guðfinna, Vala

Aðalfundur BSRB: Vala upplýsti stjórn um málefni sem tekin voru fyrir á aðalfundi BSRB þann 17. október s.l. en honum var frestað vegna umræðna um orlofsheimilamál BSRB og væntanlegar breytingar þar. Okkur hefur verið boðið að yfirtaka eitt hús í Munaðarnesi. Vala fékk nánari upplýsingar um málið á aðalfundi BSRB. Framhaldsaðalfundur BSRB mun samþykkja breytt rekstrarfyrirkomulag í Munaðarnesi. Ef engar breytingar verða frá því sem kynnt hefur verið þá treystir STAG sér ekki til að taka við húsi í Munaðarnesi.

Lesa meira...
 
13. stjórnarfundur STAG Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
fimmtudagur, 23 október 2008 13:10

13. STAG stjórnarfundur 2. október 2008.

Mættir Trausti, Guðfinna, Vala og Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns.

Harpa Þórsdóttir kom á fundinn til að fara yfir innsendar tillögur í hönnunarsamkeppni merkis fyrir STAG. Stjórnarmenn og Harpa fóru yfir tillögur og náðu að fækka þeim úr rúmlega 40 niður í 5 tillögur sem ákveðið var að horfa betur á.

Lesa meira...
 
Formannsskipti Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
mánudagur, 22 september 2008 11:13
Vegna starfsloka Gunnars Arnar Erlingssonar formanns STAG hjá Garðabæ hefur varaformaður félagsins og ritari, Vala Dröfn Hauksdóttir, tekið við formannsstarfinu fram að aðalfundi félagins nú í haust.
 
12. stjórnarfundur STAG Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
mánudagur, 22 september 2008 11:16

12. Stjórnarfundur STAG

29. ágúst 2008

Mættir Gunnar Örn, Guðfinna, Vala, Trausti.

Aðalfundur ræddur, undirbúningur í gangi. Gunnar Örn er að láta af störfum hjá Garðabæ og lætur þar með af störfum sem formaður STAG. Einnig vantar einn varamann í stað Harðar. Það er því ljóst að kjósa þarf um formann og stjórnarmann á aðalfundi.

Rætt um samningamál í haust. Ákveðið að setja á laggirnar samninganefnd, rætt um nokkra hugsanlega aðila í þá nefnd.

Orlofsnefnd stendur í endurbótum í bústöðum. Mjög góð nýting hefur verið á bústöðum í sumar. Vetrarúthlutun verður 2. september. Verið er að endurnýja húsgögn í sumum bústöðunum. Grillin í Reykjaskógi eru ónýt, kaupa þarf ný.

Fleira ekki bókað.
Vala Dröfn Hauksdóttir

 
11. stjórnarfundur STAG Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
þriðjudagur, 12 ágúst 2008 16:43

11. stjórnarfundur STAG haldinn 20. júní 2008

Mættir: Gunnar Örn, Guðfinna, Vala, Trausti.

Opnaðar tillögur í merki fyrir STAG. Alls bárust 40 tillögur frá 14 aðilum. Næstu skref í málinu ákveðin.

Fleira ekki bókað.
Vala Dröfn Hauksdóttir

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Endir >>

Síða 7 af 9