n w    w w w w

Starfsmannafélag Garðabæjar
Þú ert hér:   Forsíða
large small default
Karphúsið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
þriðjudagur, 09 desember 2008 14:44
Samninganefnd STAG fer í Karphúsið seinnipart þriðjudags 9. des til fundar við Launanefnd sveitafélaga. Er það fundur númer tvö. Nánari fréttir verða settar inn eftir því sem tækifæri er til.
 
Karphúsið - staða mála Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
fimmtudagur, 04 desember 2008 16:30

STAG mun fara aftur í Karphúsið, væntanlega þriðjudaginn 9. des og þá vonandi til að ganga frá málunum. Línur voru lagðar í dag og fengu báðir aðilar smá-heimavinnu.

Nánari fréttir verða settar inn um leið og þær liggja fyrir.

Stjórnin

 
Staða samningamála Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
föstudagur, 28 nóvember 2008 13:28

Rétt er að upplýsa félagsmenn lauslega um stöðu samningamála hjá STAG. Samningur okkar rennur út 30. nóvember rétt eins og samningar annarra bæjarstarfsmannafélaga. Enn hefur ekki verið samið við neitt félag en viðræður eru í gangi við Samflotið svokallaða. Í Samflotinu eru flest stéttarfélög bæjarfélaga á landinu, við stöndum utan við Samflotið en samningar okkar hafa ævinlega verið nokkuð vel í takt við samninga Samflotsins. Við munum setja inn fréttir af gangi mála þegar einhverjar eru.

Lesa meira...
 
Karphúsið á fimmtudag Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
miðvikudagur, 03 desember 2008 10:21

Samninganefnd STAG fer í Karphúsið fimmtudaginn 4. desember og hittir launanefnd sveitafélaga. Fréttir af gangi mála verða settar hér inn.

Í samninganefnd STAG eru Vala Dröfn Hauksdóttir formaður, Trausti Valsson stjórnarmaður og Gunnar Richardsson.

 
Kaupmannahöfn Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
föstudagur, 28 nóvember 2008 11:49

Stjórn STAG og orlofsnefnd hafa undanfarið horft á leigugjöld okkar vegna íbúðarinnar í Kaupmannahöfn tvöfaldast í íslenskum krónum og á sama tíma hefur ásókn í íbúðina minnkað umtalsvert. Af þeim sökum var ákveðið að leigja íbúðina til nokkurra mánaða, frá 15. janúar 1009 til 31. maí 2009, til Íslenskra hjóna.

Íbúðin verður leigð félagsmönnum skv. úthlutun næsta sumar (munið að búið er að opna fyrir umsóknir, ekki er hægt að sækja um rafrænt). Næsta haust verður staðan endurmetin í ljósi aðstæðna.

Orlofsnefnd er með upplýsingar um gistiheimili í Kaupmannahöfn á hagstæðu verði.

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Endir >>

Síða 5 af 9