|
mánudagur, 23 febrúar 2009 11:08 |
|
Búið er að úthluta páskum í öll orlofshús félagsins. Við viljum benda félagsmönnum á að enn eru laus tímabil næsta sumar í orlofshúsum á Spáni og í Kaupmannahöfn. Auglýsing um umsóknir í orlofshúsin innanlands verður send út um miðjan mars. |
|
|
miðvikudagur, 17 desember 2008 17:35 |
|
Niðurstöður úr kosningu um kjarasamning STAG og Launanefndar sveitarfélaganna sem var undirritaður 9. desember. Kosningin fór fram 16. og 17. desember. Á kjörskrá voru: 212 manns Atkvæði greiddu: 76 eða 35,8% Já sögðu: 75 eða 98,7% Nei sögðu: 1 eða 1,3 % Auðir og ógildir seðlar: 0 eða 0%
Samningurinn telst því samþykktur. Vala Dröfn Hauksdóttir, formaður Vilhjálmur K. Haraldsson, kjörnefnd |
|
STAG semur við Launanefnd sveitafélaga. |
|
|
|
|
þriðjudagur, 09 desember 2008 18:38 |
|
Vala Dröfn Hauksdóttir formaður STAG skrifaði undir samning um framlengingu og breytingar á kjarasamningi við Launanefnd sveitafélaga í dag, þriðjudaginn 9. desember 2008. Samningur þessi gildir frá 1. desember 2008 til 31. ágúst 2009. |
|
Lesa meira...
|
|
|
Kosning um kjarasamning STAG við Garðabæ |
|
|
|
|
mánudagur, 15 desember 2008 10:56 |
|
Kosning um kjarasamning STAG við Garðabæ hófst í gær, þriðjudag, á kynningarfundi um samninginn. Unnt er að kjósa miðvikudaginn 17. desember frá kl. 8 til 16 í þjónustuveri Garðabæjar, Garðatorgi 7 (1. hæð). Félagar hvattir til að mæta og kjósa. Stjórnin |
|
Minnum á fræðslufundi BSRB alla fimmtudaga |
|
|
|
|
þriðjudagur, 09 desember 2008 14:47 |
|
Við viljum minna félagsmenn á að BSRB er með vikulega fræðslufundi á fimmtudögum kl. 16.30 þar sem ýmsir sérfræðingar eru fengnir til skrafs og ráðagerða. Á heimasíðu BSRB (www.bsrb.is) má finna upplýsingar um næsta fund hverju sinni. Næsti fundur fjallar um Vinnumarkaðinn og atvinnuhorfur framundan. |
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 4 af 9 |