n w    w w w w

Starfsmannafélag Garðabæjar
Þú ert hér:   Forsíða
large small default
Að afloknum aðalfundi Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
miðvikudagur, 16 nóvember 2011 16:11

Á aðalfundi STAG sem haldinn var þriðjudaginn 15. nóvember 2011 var lögum félagsins breytt þannig að nú eru 5 aðalmenn í stjórn félagsins. Kosið er sérstaklega um formann og ritara. Eftirtaldir voru kjörnir í aðalstjórn félagsins:

Vala Dröfn Hauksdóttir - formaður

Ingunn Mjöll Birgisdóttir - ritari

Sigurður Hafliðason

Soffía Dagmar Þorleifsdóttir

Þorbjörg Kolbeinsdóttir

Í varastjórn voru kjörnir þeir Sigurður Ottósson og Trausti Valsson. Góð mæting var á fundinn og þakkar stjórn fundarmönnum kærlega fyrir samveruna og góðan fund. Fundargerð fundarins ásamt nýjum lögum kemur inn á næstu dögum.

 
Haust og vetrarúthlutun 2011 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
þriðjudagur, 30 ágúst 2011 14:20

Haust- og vetrarleiga á orlofshúsum STAG verður afgreidd á skrifstofu STAG  Kirkjulundi 3, á milli kl. 16.30 og 17.00, fimmtudaginn 1. september. Um er að ræða leigu á tímabilinu september 2011 til janúar 2012.

Orlofshús STAG eru í: Reykjaskógi í Biskupstungum, við Stykkishólm og í Kjarnaskógi við Akureyri. Helgarleiga er 7.000 krónur í öll orlofshús.

Leigutímabil haustleigu er aðeins mismunandi eftir því hvaða orlofshús er að þessu sinni.  Einhver tímabil geta verið upptekin vegna stórúthlutana eða þrifa.

Frá 2. september er tekið á móti pöntunum í síma: 695-1400 Soffía.  Dröfn er í sumarfríi til 12. sept. En eftir það má einnig hringja í hana í síma: 864-0597.

ORLOFSNEFND STAG

 
FRAMLENGING KOSNINGAR UM NÝJAN KJARASAMNING Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
þriðjudagur, 19 júlí 2011 09:56

Vegna ónógrar þátttöku er kjörfundur vegna kosninga um nýjan kjarasamning STAG við Samband Íslenskra sveitafélaga (Garðabæ) framlengdur um eina viku.

Kosning um samninginn fer fram í þjónustuveri Garðabæjar, Garðatorgi 7, á opnunartíma þess eftirtalda daga:

Þriðjudag 19.júlí til kl. 16

Miðvikudag 20. júlí frá kl. 8 til kl. 16

Fimmtudag 21. júlí frá kl. 8 til 18

Föstudag 22. júlí frá kl. 8 til 14

Félagar eru hvattir til að taka afstöðu og greiða atkvæði.

Formaður verður á skrifstofu STAG fimmtudag 21. júlí frá kl. 16.30 til 18.30 og svarar fúslega spurningum ef einhverjar eru. Nýjan kjarasamning, með réttum launatöflum, má sjá undir hlekknum "Samningar" hér í vinstri valglugga.

 
Niðurstaða kosninga Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
föstudagur, 22 júlí 2011 14:40

 

Kjöri um nýjan kjarasamning STAG og SÍS er lokið. Niðurstaða kjörfundar er þessi:

Á kjörskrá: 248 manns
Atkvæði greiddu 59 eða 23,79%

Nei sögðu 9 eða 15,25%
Já sögðu 50 eða 84,75%

Samningurinn telst því samþykktur af hálfu STAG.

 
Kynningarfundur og kosning um nýjan kjarasamning Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
fimmtudagur, 14 júlí 2011 14:46

KYNNINGARFUNDUR VEGNA NÝS KJARASAMNINGS STAG OG SAMBANDS ÍSLENSKRA SVEITAFÉLAGA VEGNA STARFSMANNA HJÁ GARÐABÆ VERÐUR HALDINN MÁNUDAGINN 18. JÚLÍ 2011.

FUNDARSTAÐUR: BETRUNARHÚSIÐ ( Efri hæð gamla Hagkaupshúss á Garðatorgi)
TÍMI: KL. 16.10 MÁNUDAG 18. JÚLÍ.

KOSNING UM SAMNINGINN FER FRAM Í ÞJÓNUSTUVERI GARÐABÆJAR, GARÐATORGI 7, EFTIRTALDA DAGA:

FRÁ HÁDEGI FIMMTUDAG 14. JÚLÍ TIL KL. 18 
FÖSTUDAG 15. JÚLÍ FRÁ KL. 8 TIL 14
MÁNUDAGINN 18. JÚLÍ FRÁ KL. 8 TIL 16

KOSNING MUN EINNIG FARA FRAM EFTIR FUNDINN Í BETRUNARHÚSINU. KJÖRFUNDI LÝKUR KL. 17.30.
FÉLAGAR ERU HVATTIR TIL AÐ KYNNA SÉR SAMNINGINN OG KJÓSA UM HANN. MEINLEG VILLA ER Í LAUNATÖFLUM SEM FRAM KOMA Í ÚTSENDUM GÖGNUM, EINUNGIS GRUNNÞREP ER MEÐ RÉTTUM UPPHÆÐUM. VINSAMLEGAST HAFIÐ ÞAÐ Í HUGA VIÐ SKOÐUN GAGNA Á VINNUSTÖÐUM.

HELSTU ATRIÐI SAMINGS:

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 12